
- Opið
- Lokað
Heimatorfa
- Drottningin, 4 sæta
- Kóngurinn, 4 sæta
- Lilli klifurmús
- Patti broddgöltur
- Töfrateppi
- Amma mús
- Hérastubbur
- Hringekja
- Dew dýnan
- Púkinn Park
Suðursvæði
- Bangsadrengur
- Mikki refur
- Kormákur afi
- Jón Oddur
- Jón Bjarni
- Gosinn, 4 sæta
Gönguleiðir
- Leiruhringur (1 km)
- Grunnbraut (2.5 km)
- Fimman (5 km)
- Strompahringur (6.5 km)
- Kerlingardalur (12 km)
Opnunartímar Bláfjalla
14:00 – 21:00
17:00 – 20:00
10:00 – 17:00
- Opið
- Lokað
Lyftur
- Stólalyfta, 2 sæta
- I-lyfta
- II-lyfta Kóngsgil
- Byrjendalyfta
Gönguleiðir
- Gönguleið I (5 km)
- Gönguleið II (10 km)
Bláfjöll
Vertíðinni lokið í Bláfjöllum
Það tekur okkur sárt að tilkynna hér með að vertíðinni sé lokið í Bláfjöllum þennan veturinn. Það kom enginn snjór um helgina eins og spár gerðu okkur vonir um en allar skíðaleiðir eru á einum eða fleiri stöðum í sundur ásamt lyftusporum eftir hlýindakaflann í lok mars og byrjun apríl. Það er því ljóst að páskarnir eru ekki inni í ár og því er þetta niðurstaðan. Þetta var veturinn sem eiginlega aldrei kom. Opnunardagar voru 36 en þrátt fyrir fáa opnunardaga var þetta fjórði aðsóknarbesti veturinn frá upphafi. Samkvæmt hliðatalningu komu 78.166 gestir í lyftur og á skíðagöngusvæði komu 2.079 gestir.
Fyrstu 12-15 dagarnir í opnun þennan veturinn voru algerlega í boði snjóframleiðslunnar en annað árið í röð er hún að sanna gildi sitt.
Starfsfólk Bláfjalla þakkar kærlega fyrir veturinn.
Skálafell
Lokað verður í Skálafelli í vetur.
MIÐASALA
Einfaldast er að eiga SKIDATA kort og fylla á kortið hér að ofan og velja Kaupa kort/áfylling áður en komið er í Bláfjöll.
Þessi kort kosta 1600kr. og eru fjölnota, þau eru til sölu á Olís Norðlingaholti og á nokkrum N1 stöðvum, Ártúnshöfða, Lækjargötu Hafnarfirði, N1 Háholti í Mosfellsbæ og Hveragerði.
Hægt er að kaupa kort og áfyllingar á þau, 2klst, 3klst kort eða dagskort á N1 Ártúnshöfða, Hafnarfirði og Mosfellsbæ,
Einnig er hægt að kaupa kort og áfylling á þau í Bláfjallaskála við komu en þar getur myndast biðröð í miðasöluna.
Skíðaskóli Bláfjalla er starfræktur um helgar fyrir börn á aldrinum 5-14 ára. Þeir nemendur sem þurfa skíðaútbúnað úr leigunni fá hann á kr. 3.100.
Verð á námskeið er kr. 6.200, innifalið lyftukort.
Tvö námskeið eru í boði yfir daginn:
kl. 10:30 – 12:30 og kl. 13:00 – 15:00.
Aðeins er um byrjendanámskeið að ræða og verður því aðeins notast við töfrateppið, kaðallyftuna og diskalyftur fyrir byrjendur.
Systkina afsláttur er kr. 500, fyrir hvern nemanda.
Mikilvægt er að nemendur mæti 30 mínútum áður en námskeið á að hefjast. Þeir sem ekki eru mættir þegar skóli hefst tapa skráningunni.